Einhverja hluta vegna hafa fjölmiðlar ákveðið að vera á á móti Ástþóri . Hann vill gera allt til að koma á friði, en almenningur virðist ekki kæra sig um frið, og hvað þá fjölmiðlar. Vilja allir bara vera í stríði og pæla í hommum og vitlausum kellum ?
Árið 1979 varð Myndiðjan Ástþór gjaldþrota, og Ástþór Magnússon var sakaður um að hafa komið fjármunum undan.
Árið 1998 hélt Ástþór því fram að hann væri í viðræðum við stóra erlenda aðila að kaupa Landsbankann. Ekkert varð úr því.
Árið 2001 var Ástþór með svokallað "símahapp" sem var svindl. Hann sendi út sms til 3000 manns, þar sem viðkomandi var tilkynnt að hann hefði fengið vinning og gefið upp símanúmer. Ekki kom fram að það kostaði 990 kr. að hringja.
Árið 2003 var Ástþór kærður fyrir að senda út tilhæfulausar viðvaranir um yfirvofandi sprengjuárásir á íslensk flugfélög. Hann mætti fyrir dóm útbíaður í tómatsósu.
Árið 2004 var annað happdrættissvindl, og dómsmálaráðuneytið krafðist þess að dregið yrði í happdrætti Ástþórs. Í ljós kom að Porche bifreiðin, sem átti að vera í verðlaun, var aldrei til.
Árið 2004 mætti þáverandi eiginkona Ástþórs, Natalía, í blaðaviðtal þar sem hún sagðist ekki vilja vera þræll Ástþórs lengur. Hún sakaði hann um að hafa ruðst inn til sín, þegar þau voru í skilnaðarferli, og haft í hótunum við hana.
Árið 2005 réðst Ástþór á ljósmyndara DV í Héraðsdómi og sprautaði tómatsósu á hann. Ástþór var þá fyrir dómi fyrir að hafa eyðilagt myndavél í eigu flugblaðs Iceland Express.
Árið 2005 sagði leigjandi Ástþórs frá því að Ástþór hefði sent vopnaða handrukkara á hann og krafist þess að hann færi úr íbúðinni.
Árið 2024 kom í ljós að símanúmer Ástþórs og netfang var skráð fyrir síðu sem dreifði óhróðri og hinsegin fordómum um Baldur Þórhallsson, forsetaframbjóðanda.
neutralist | Ásþór á sér gríðarlega skrautlegan feril að baki, sem felur m.a. í sér gjald...
Ásþór á sér gríðarlega skrautlegan feril að baki, sem felur m.a. í sér gjaldþrot, mörg dómsmál, ásakanir um að hann hafi skotið undan eignum, ásakanir um happdrættissvindl, ásakanir fyrrverandi eiginkonu um ofbeldi og svik, kæru fyrir eignaspjöll, árás gegn blaðaljósmyndara og ásakanir leigjanda um hótanir og ofbeldi.
Hann er enginn friðarpostuli.
Zjonni71 | Hann gæti orðið það ef fólk hættir að dreifa falsfréttum.
Allir sem eru að mótmæla Israel hljóta að kjósa hann. Þá geta þeir hætt að blanda eurovision song contest in í þetta þar sem ekki einn einasta keppandi, útvarpstjóri einhvers lands eða laghöfundur eru að fara að tala við B. Netanjunu (eða hverning það er skrifað). meiri líkur að Ástþór geri það
Zjonni71 | Ef hann fer ekki á bessastaði núna, er hætt við að þjóðin segi einn daginn; ...