Hvenær er eðlilegt að naflastrengurinn (búturinn sem verður eftir) detti af?
Og á maður að bera eitthvað á hann / í kringum hann þangað til hann dettur af??
:-/
*********************************************************
If you can't stand the heat, stay out of the kitchen!
Minnir að minn hafi verið 7-10 daga gamall þegar hann datt af. Hjúkkan sem kom heim og sem við hittum upp á spítala mælti með að þrífa í kringum með eyrnapinna og soðnu vatni en passa að þurrka á eftir. Svo væri mjög gott að eiga naflapúður (m.a. því það er sótthreinsandi) og setja það reglulega á naflan og svæðið þar í kring.
__________________________________________________________
“Beneath the makeup and behind the smile I am just a girl who wishes for the world.” Marilyn Monroe
þreytta | Mér finnst nú mjög skrítið að hún hafi sagt að hann mætti ekki fara í bað fyr...
Mér finnst nú mjög skrítið að hún hafi sagt að hann mætti ekki fara í bað fyrr en stúfurinn væri dottinn af. Vegna þess að ef maður biður um það uppá spítala þá hjálpa þær mann að baða þar áður en maður fer heim, þ.e. ef maður er lengur en sólahring.
Það kom engin lykt af naflastúfinum þó svo ég hafi bara notað vatn.
kveðja Lýdía
lilycollins34 | Það er gott að heyra að þú sért að sinna þessu vel. Það er rétt að þrífa vel...
Það er gott að heyra að þú sért að sinna þessu vel. Það er rétt að þrífa vel https://bitlifeonline.com í kringum naflið með eyrnapinna og soðnu vatni, svo passa að þurrka vel á eftir. Naflapúður eru einnig góð hugmynd, þar sem þeir geta hjálpað til við sótthreinsun og minnkað líkur á sýkingum.
bekean | Þú talar um mjög góða aðferð til að umgjörða um sár og umhverfi á þau, sérst...
Þú talar um mjög góða aðferð til að umgjörða um sár og umhverfi á þau, sérstaklega hjá mjög ungum börnum. Þrífaði og róleg heilsuástand er mjög mikilvægt til að koma í veg fyrir sýkingar og önnur vandamál. https://heardleunlimited.com/
mobbanker | Hvert efni tekur leikmenn til að læra mikið af faglegum upplýsingum. Kanna r...
Hvert efni tekur leikmenn til að læra mikið af faglegum upplýsingum. Kanna rýmið á áhrifaríkan hátt og öðlast mismunandi þekkingu https://basketbrosio.com
waderatke | Spilarar munu uppgötva mikið af sérfræðiþekkingu frá hverju efni. Kynntu þér...
Mín var orðin 2 vikna þegar hann datt af.
Ljósurnar mínar sögðu mér að snerta ekki þetta svæði. Ekki baða barnið fyrr en hann er dottin af. Ef þú getur ekki setið á þér að baða barnið skaltu passa að vatnið, sem naflinn hefur verið í, fari ekki í andlit barnsins.
Ég fór eftir þessu og núna er barnið mitt með þennan líka undurfagra nafla.
Kveðja,
Lufsa
Felis | Okey það er greinilega misjafnt hvað manni er sagt. Naflastúfurinn datt af á ...
Okey það er greinilega misjafnt hvað manni er sagt. Naflastúfurinn datt af á 5 degi hjá mínum (frekar snemma held ég). Mér var sagt að hreinsa í kringum stúfinn með vatni og sótthreinsandi, það væri í raun nóg að nota bara vatn en það kæmi verri lykt ef að sótthreinsandi væri ekki notað því að í raun er naflastúfurinn að rotna af. Mér var sagt að ég mætti setja hann í bað og fara með hann í sturtu þó að naflastúfurinn væri ennþá, það væri alveg í lagi. Bara að fara varlega þegar maður er að þurrka í kringum klemmuna. Já og alls ekki nota sápu (en það gerir það hvort eð er enginn núorðið á ungbörn)
Felis
___________________
“Why do people say 'grow some balls'? Balls are weak and sensitive. If you wanna be tough, grow a vagina. Those things can take a pounding.”
― Betty White
BrYnX | mín var 7 dagsa þegar hann datt af og hún fór´3 í bað á þeim tíma
Minn var ca vikugamall er stúfurinn datt af.
Ljósmóðirin mín sagði að hann mætti fara í bað frá degi 1 ef maður vildi....
og þetta var bara fyrir 2 vikum síðan.
*polo* | Mín var 2 vikna og mér var sagt að láta stubbinn bara vera.
Þau hljóta að mega fara í bað með stúfinn enda eru ekki svo mörg ár síðan þau voru böðuð niðri á fæðingardeild svo ég er ekki alveg að skilja það. En ljósan sagði mér núna að láta þetta bara alveg vera ekkert vatn eða neitt bara halda þessu þurru þá dytti hann fyrr af og hann fór af á fjórða degi:) en síðast þegar ég átti var nafladuftið notað
Lynx | Lillinn minn fór fyrst í smá vatnsbað 4 daga gamall og reglulega eftir það (h...
Lillinn minn fór fyrst í smá vatnsbað 4 daga gamall og reglulega eftir það (honum fannst það voða gott) þótt naflastúfurinn væri enn á. Mér var sagt að það væri allt í lagi að baða hann þótt naflastrengurinn væri ekki dottinn af. Ég man ekki alveg hvenær þetta datt - sennilega kringum 10 daga. Ég þurrkaði þetta eftir baðið með hreinum grisjum úr apóteki og setti smá naflapúður ef ég mundi eftir því. Það kom aðeins rotnunarlykt og svo pínku blóð þegar hann datt (lafði á einhverri smá húðræmu heillengi) - ég var óskaplega stressuð með þetta og ólýsanlega fegin þegar ég fann stúfinn hangandi á taubleyjunni sem ég var að nota á þessum tíma. Veit ekki hvað það var við þennan ofureðlilega hlut sem bara geiv mí ðö krípps!
L.
Kv.
L.
miramis | Kannski það að þetta er dauð og rotnandi húð ;) Mér finnst hann frekar ólekke...
Ég þvoði í kringum naflastúfinn með daufu spritti, sjúkrahússpritti og eyrnapinna. Það voru leiðbeiningarnar sem ég fékk af fæðingardeildinni. Sprittið flýtir fyrir að stúfurinn þorni og hann datt af á 6. degi. Auk þess sagði ljósmóðir mér að ef það kæmi vond lykt af stubbnum skildi ég nota spritt oftar.
^__^
(oo)______
(__) )\/\
||----w |
|| ||
Bekkan | Minn fór í bað uppi á fæðingadeild 3 daga gamall. Naflastúfurinn datt af þega...
Minn fór í bað uppi á fæðingadeild 3 daga gamall. Naflastúfurinn datt af þegar hann var 5 daga. Mér var ráðlagt að þvo í kringum hann með volgu vatni og eyrnapinna... Til að þvo burt storknað blóð og önnur óhreinindi. Mér var svo ráðlagt að setja hann ekki í bað í nokkra daga á eftir til að leifa naflanum að þorna, ætti frekar bara að þvo honum með þvottapoka...
Ég átti nú bara fyrir 20 dögum síðan...
Kv. Bekkan og 20 daga prins
Fíasól | ég átti á FSA og þar var mér sagt að barnið mætti ekki fara í bað á meðan að ...
ég átti á FSA og þar var mér sagt að barnið mætti ekki fara í bað á meðan að stúfurinn er ekki dottinn af. Okkur var kennt að baða barnið bara með blautum klút. Síðan að nota spritt til að þrífa í kringum naflann. Ég gerði þetta með báðar stelpurnar mínar og þetta var dottið af eftir ca vikutíma.
Hayabusa | minn var 5 daga þegar hann datt af. Ljósurnar sögðu mér að hreinsa með eyrnap...
minn var 5 daga þegar hann datt af. Ljósurnar sögðu mér að hreinsa með eyrnapinna með sótthreinsunarspritti (notði própanól heima) og þær böðuðu hann meira að segja þegar hann var 3ja daga og ennþá með naflastúfinn.
þreytta | minn strákur var minnir mig 7 daga gamall þegar hann datt af.
Ég bar ekkert ...
minn strákur var minnir mig 7 daga gamall þegar hann datt af. Ég bar ekkert á hann. Ég bleytti bara eyrnapinna með vatni úr krananum og þvoði stúfinunm, svo þurrkaði ég honum með þurrum eyrnapinna.
Kveðja lýdía
angel2545 | Ertu ekki búinn að sjá þetta!? +18 => https://is.gd/RbBybi